Ný ríkisstjórn fundar í Ráðhúsinu á Akureyri í dag

Ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna kemur saman til fyrsta fundar á Akureyri í hádeginu í dag. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem almennur ríkisstjórnarfundur er haldinn utan Reykjavíkur en fundir hafa verið haldnir á hátíðarstundum á Þingvöllum. Fundur ríkisstjórnarinnar verður haldinn kl.12:00 í Ráðhúsinu en að honum loknum sitja forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar fyrir svörum blaðamanna í Háskólanum á Akureyri kl. 14:30.  

Í tilkynningu frá stjórnarráðinu segir að með staðarvalinu vilji ríkisstjórnin undirstrika að hún er ekki bara stjórn þeirra sem á höfuðborgarsvæðinu búa, heldur landsins alls. Ekki sé útilokað að fleiri fundir en þessi verði haldnir utan Reykjavíkur þegar fram líði tímar.

Nýjast