Norðurþing og Björgunarsveitin Garðar skrifuðu í dag undir styrktarsamning sem er framlenging á samningi við Björgunarsveitina til þriggja ára skv. samþykkt byggðarráðs á fundi ráðsins 30. apríl sl. Greint er frá þessu á vef sveitarfélagsins.
,,Með samningnum eru tengslin efld í því skyni að almannavarna- og æskulýðsstarf verði áfram þróttmikið, íbúum sveitarfélagsins til heilla.
Tengiliður Norðurþings við Björgunarsveitina er íþrótta- og tómstundafulltrúi. Innan björgunarsveitarinnarer unnið öflugt sjálfboðaliðastarf og er framlag sjálfboðaliða ómetanlegt fyrir samfélagið allt," segir í tilkynningunni.