"Þetta eru þrír gámar sem fara frá okkur þetta haustið eða í kringum 110 þúsund garnir. Verðið á þessu er þokkalegt miðað við margt annað sem við höfum verið að sjá á erlendum mörkuðum. Þó væri þessi útflutningur ekki arðvænlegur ef gengið á krónunni væri annað," segir Ingvar Már Gíslason markaðsstjóri Norðlenska.
Garnirnar eru síðan fullverkaðar í Egyptalandi, flokkaðar og seldar áfram til notkunar í framleiðslu á pylsum, að mestu leiti í Evrópu.