11.desember - 18.desember - Tbl 50
Njál Trausta áfram sem þingmann okkar í Norðausturkjördæmi
Njáll Trausti Friðbertsson er í baráttusæti Sjálfstæðisflokksins í þeim tvísýnu þingkosningum sem framundan eru.
Miklu skiptir að tryggja Njál Trausta áfram þingsæti. Hann býr yfir þekkingu, reynslu og hæfileikum í stjórnmálum. Hann er farsæll í mannlegum samskiptum, drífandi og hvetjandi, á auðvelt með að fá fólk til að starfa með sér og draga fram það besta hjá samstarfsfólki. Sem þingmaður hefur hann sýnt dugnað, verið fyrirmynd, heiðarlegur og hefur óflekkað mannorð.
Reynsla og tengsl Njáls Trausta við atvinnulíf og áralöng árangursrík þátttaka í sveitarstjórnmálum hefur skilað miklu. Kröftugt starf hans á Alþingi frá árinu 2016 hefur verið Norðausturkjördæmi til farsældar og þjóðarinnar allri. Formennska hans í fjárlaganefnd segir þá sögu.
Við höfum þekkt og starfað með Njáli Trausta Friðbertssyni um árabil sem nú býður sig fram í 2. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins.
Við kjósum Njál Trausta og hvetjum alla Norðlendinga að gera slíkt hið sama. Hann verður að tryggja áfram á þing.
Inga Stella Pétursdóttir, deildastjóri á rannsóknadeild SAk
Elín Dögg Gunnars Väljaots, fjármálastjóri Dekkjahallarinnar
Ólöf Hallgrímsdóttir, ferðaþjónustubóndi Vogafjósi Mývatnssveit
Gunnlaugur Eiðsson, Kjarnafæði Norðlenska
Arngrímur B. Jóhannsson, fyrrverandi flugstjóri
Guðmundur Bjarnason, bóndi Svalbarði