„Barnið mitt leggur ekki aðra í einelti.“
Þetta hugsum við flest um börnin okkar. Samt hefur að tæpur fjórðungur (23%) barna og ungmenna á aldrinum 9-18 ára upplifað einelti á netinu, í símanum eða tölvuleikjum sl. 12 mánuði samkvæmt nýrri skýrslu Fjölmiðlanefndar og Menntavísindastofnunar um börn og netmiðla. Í öllum eineltismálum eru bæði þolendur og gerendur. Þar með getum við ekki horft framhjá þeirri staðreynd að á sama tíma og börn verða fyrir einelti er jafnframt hluti barna sem leggja aðra í einelti. En hvaðan koma þessi börn sem eru gerendur eineltis ef ekkert foreldri á barn sem er gerandi?
Það er í eðli okkar foreldra að vilja vernda börnin okkar. Við erum því flest fljót að bregðast við þegar við heyrum að barnið okkar hafi verið lagt í einelti. Við trúum barninu, grípum til aðgerða og reynum að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að bæta stöðu mála. En hvað gerist þegar að við heyrum að barnið okkar hafi lagt annað barn í einelti? Trúum við því sem sagt er og gerum við eitthvað til að bregðast við, annað en efast um það sem við heyrum?
Tæpur fimmtungur upplifað hótanir eða útilokanir
Eitt af hverjum fjórum börnum og ungmennum á aldrinum 9-18 ára hafa fengið sendar ljótar athugasemdir á netinu, í tölvuleik eða á samfélagsmiðlum, 17% hafa upplifað hótanir og 18% hafa upplifað útilokanir frá hópum á netinu. Þetta er því miður veruleiki margra barna á Íslandi.
Vandinn hverfur ekkert þótt við lokum augunum fyrir þessari tölfræði. Hann hverfur heldur ekki með því að afneita honum, kenna öðrum um eða láta eins og ekkert sé. Það er ekki nóg að foreldrar þolenda bregðist við, heldur þurfa allir foreldrar að eiga hlut að máli.
Myndbirtingar sem valda reiði
Alls höfðu 14% grunnskólanema í 4.-10. bekk og 16% framhaldsskólanema reiðst eða komist í uppnám vegna myndbirtinga af þeim á netinu undanfarna 12 mánuði. Stúlkur voru þar í miklum meirihluta þar sem fjórðungur (25%) á aldrinum 13-18 ára hafði upplifað slíkt í samanburði við 13% stráka.
Viðbrögð við myndbirtingum sem valda reiði eða leiða
Viðbrögð við leiðinlegum kommentum
Af hverju leita aðeins 10% barna og ungmenna til foreldra eða þeirra sem eldri eru í þessum erfiðu aðstæðum? Af hverju felast algengustu viðbrögðin í því að aðhafast ekkert eða reyna að eyða vandanum? Gæti það verið vegna þess hvernig við sem foreldrar bregðumst við og það hvaða fordæmi við setjum börnunum okkar?
Við verðum að eiga frumkvæðið að því að ræða þessa hluti við börnin okkar og getum ekki ætlast til þess að þau geri það. Barnið okkar gæti verið gerandi eða hlutlaus áhorfandi í eineltismáli. Barnið okkar gæti verið að valda öðru barni skaða með gjörðum sínum án þess að átta sig almennilega á afleiðingum gjörða sinna. Skömmin okkar sem foreldra felst ekki í að eiga börn sem gera mistök heldur þegar við hjálpum þeim ekki á slíkum stundum. Það hjálpar engum að gera ekkert, reyna að eyða vandanum tímabundið og sleppa því að eiga mikilvægt samtal sem gæti verið óþægilegt.
10 hlutir sem er gott að hafa í huga varðandi netnotkun barna
Höfundur er verkefnastjóri miðlalæsis hjá Fjölmiðlanefnd.
Heimild:
Börn og netmiðlar - Rannsókn Fjölmiðlanefndar og Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands.