Naumt tap gegn Wales á Evrópumótinu í krullu

Íslenska liðið spilaði einn af sínum bestu leikjum í dag, gaf liði sem er í toppbaráttu riðilsins ekkert eftir og minnstu munaði að Íslendingum tækist að snúa leiknum sér í hag í næstsíðustu umferðinni. Íslendingar byrjuðu vel á móti Wales og náðu þremur stigum strax í fyrstu umferðinni. Wales svaraði með einu stigi en Íslendingarnir skoruðu strax eitt stig til baka. Í fjórðu umferðinni gengu hlutirnir ekki sem skyldi og þá skoraði Wales 5 stig og náði tveggja stiga forystu, 4-6.  

Ekkert var skoraði í fimmtu umferðinni og staðan því 4-6 þegar leikurinn var hálfnaður. Íslenska liðið lék vel eftir hlé og náði að minnka muninn í 6-7 og minnstu munaði í næstsíðustu umferðinni að liðið kæmumst yfir 9-6. Staðan var þannig að Wales átti síðasta stein en Ísland átti þrjá innstu steina og gat lokað leiðinni fyrir síðasta steini Wales. Sá steinn virtist lenda á einhverju smá korni og tók snögga beygju þannig að leiðin var opin og fyrirliði Wales gat lagt sinn stein inn á miðjuna og skorað eitt stig. Wales var því tveimur stigum yfir fyrir lokaumferðina en ef lokaskot þeirra í næstsíðustu umferðinni hefði geigað þá hefði staðan orðið allt önnur og íslenska liðið komist tveimur stigum yfir. Ísland þurfti því að skora tvö stig í lokaumferðinni til að jafna eða þrjú til að vinna leikinn. Andstæðingunum gekk vel að skjóta út steinum í lokaumferðinni og á endanum áttum íslenska liðið aðeins eftir einn stein en þurftum að skora tvö stig. Leiknum lauk því með sigri Wales, 6-8.

Skorið í leiknum:

 Ísland 

3

 1

 0

 1

 1

 x

 6

 Wales

 1

 5

 1

1

 x

 8

Evrópska krullusambandið samþykkti fyrr á árinu að skipta Evrópumótinu í A, B og C-keppni í stað þess að nú eru bara A og B-keppni. Áfram verða tíu lið í A-keppninni, fjórtán lið verða í B-keppninni og önnur í C. Þetta þýðir að þrjú neðstu liðin úr hvorum riðli í B-keppninni nú fara niður í C en sú keppni fer væntanlega fram í september. Ekki hefur verið ákveðið hvar sú keppni fer fram. Fari svo að tvö eða fleiri lið verði jöfn í þeim sætum sem skipta máli varðandi það hvaða lið fara niður í C-keppni þá þarf að leika aukaleik(i) um það á fimmtudag.

Eftir leiki dagsins eru Íslendingar í 6.-7. sæti síns riðils með tvo sigra, eins og Króatar. Króatar eiga hins vegar eftir að leika við neðsta lið riðilsins og gætu því komist í þrjá vinninga. Ef Íslendingar spila hins vegar eins vel á morgun og þeir gerðu gegn Wales í dag gætu þeir allt eins náð sigri á móti Lettlandi eða Írlandi, en bæði þessi lið eru í toppbaráttunni. Það er því spennandi dagur framundan hjá okkar mönnum í Aberdeen. Kannski halda þeir sér í B-hópi þó þeir tapi báðum, kannski þurfa þeir sigur til að eiga möguleika. Austurríki og Wales eru nú í efsta sæti riðilsins með sex sigra, næstir koma Ungverjar, Lettar og Írar með fimm sigra.

Nýjast