Nægur snjór í Hlíðarfjalli og mjög góð aðsókn

Aðsókn í Hlíðarfjall hefur verið mjög góð það sem af er vetri og nú hafa 23.500 gestir komið á skíðasvæðið miðað við 13.500 á sama tíma í fyrra og helmingi fleiri vetrarkort hafa verið seld. Þrátt fyrir að kröftug lægð með um 10 stiga hita hafi gengið yfir Norðurland í byrjun vikunnar, er skíðafærið í Hlíðarfjalli með betra móti og nægur snjór í öllum brekkum.  

Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður skíðasvæðisins, segir að þetta sé ekki síst að þakka þéttu undirlagi af snjó sem framleiddur var fyrr í vetur þegar hörkugaddur var dag eftir dag. Snjóframleiðslan í Hlíðarfjalli hefur því enn og aftur sannað gildi sitt. Hitastig á Akureyri er við frostmark í dag en síðan tekur við kuldakafli svo langt sem augað eygir. Skíðafólk í Hlíðarfjalli, Akureyringar og gestir þeirra, mega því eiga von á góðum skíðasnjó næstu vikurnar og vonandi fram á vor.

Nýjast