N4 óskar eftir gjaldþrotaskiptum

Fjölmiðlafyrirtækið N4 ehf. hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum eftir að tilraunir til að tryggja fr…
Fjölmiðlafyrirtækið N4 ehf. hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum eftir að tilraunir til að tryggja framtíð fyrirtækisins báru ekki árangur.

Fjölmiðlafyrirtækið N4 ehf. hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum eftir að tilraunir til að tryggja framtíð fyrirtækisins báru ekki árangur.

"N4 hefur framleitt íslenskt efni undanfarin 15 ár. Fólkið í landinu hefur verið í brennidepli í allri framleiðslu efnis. N4 hefur varðveitt sögu þjóðarinnar. Þessum kafla í sögu fjölmiðla á Íslandi er lokið að sinni.

Rekstur fjölmiðils eins og N4 hefur byggt á óeigingjörnu starfi starfsfólks í sífellt erfiðara rekstrarumhverfi fjölmiðla á Íslandi. Fyrir það á starfsfólkið mikið hrós skilið.

Stjórn fyrirtækisins harmar þessa niðurstöðu, ekki síst í ljósi þess að N4 hefur verið leiðandi fjölmiðill í framleiðslu á íslensku sjónvarpsefni utan höfuðborgarsvæðisins," segir á vefsíðu N4.


Athugasemdir

Nýjast