Mitt á milli nálægðar og endalausrar fjarlægðar

Listaverkið
Listaverkið " Mitt á milli nálægðar og endalausrar fjarlægðar" eftir Kristinn E. Hrafnsson / myndir Samherji og Dagur

Listaverkið Mitt á milli nálægðar og endalausrar fjarlægðar eftir Kristinn E. Hrafnsson hefur verið hreinsað og lagað en verkið hefur staðið við inngang fiskvinnsluhúss Útgerðarfélags Akureyringa í þrjátíu ár og var farið að láta á sjá.

Akureyrarbær færði ÚA verkið að gjöf í tilefni af fimmtíu ára afmæli félagsins, 26. maí 1995.  Efnt var til lokaðrar samkeppni meðal nokkurra listamanna um gerð afmælisgjafarinnar og var verk Kristins valið sem gjöf bæjarins.

Í tengslum við áttatíu ára afmæli ÚA var ákveðið að láta hreinsa verkið og mála og er það nú sem nýtt.

Verkið er á þremur stólpum, sem eru tákn fyrir fortíð, framtíð og líðandi stund.

Frumformin; hringur, ferhyrningur og þríhyrningur, standa sem táknmyndir fyrir óendanlega möguleika.

Anna Kristjánsdóttir, ekkja Vilhelms Þorsteinssonar fyrrverandi framkvæmdastjóra ÚA, afhjúpaði listaverkið og fjallaði blaðið Dagur um athöfnina.

Almenningur getur að sjálfsögðu skoðað listaverkið, bílastæðið við fiskvinnsluhúsið er opið þegar vinnsla er í húsinu. Þegar ekki er vinnsla í húsinu er bílastæðið lokað. Gestum er bent á að stórvirk tæki oft á ferðinni á bílastæðinu og því þarf gæta varúðar.

Við innganginn hefur verið sett upp ljósmyndasýning, þar sem saga ÚA er rakin. Það er því tvöföld ástæða til að heimsækja ÚA við Fiskitanga.

Þríhyrningur er a einum stöpli verksins

Blaðið Dagur fjallaði um listaverkið, þegar það var afhjúpað/ skjáskot af timarit.is

Nýjast