Steinþór Þorsteinsson laganemi við HA býður fólk velkomið - segir stuttlega frá dagskránni. Sigrún Björk Jakobsdóttir
bæjarstjóri flytur stutt erindi.
Jón Kristinsson segir nokkur orð, sem og Þorsteinn Gunnarsson rektor HA.
Kl. 11.15 verður móttaka í húsakynnum Háskólans á Akureyri Þingvallastræti 23 (stofa 14). Steinþór Þorsteinsson, laganemi
við HA býður fólk velkomið en til máls taka; Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, Margrét Heinreksdóttir emeritus og
Björn Jósep Arnviðarsson sýslumaður. Að verkefninu standa: Akureyrarbær, EBÍ (Eignarhaldsfélagið Brunabótafélags Íslands),
Dómsmálaráðuneytið, Sjóvá - Almennar og Þemis - félaga laganema við Háskólann á Akureyri.
Davíð leggur Golíat
Á þessum stað er markað upphaf eins mikilvægasta dómsmáls þjóðarinnar á síðari tímum.
Þriðjudaginn 26. júní 1984 kl. 16.40 stöðvuðu tveir lögreglumenn Jón Kristinsson á Subaru bifreið sinni A 3088 og gáfu honum að
sök að hafa ekki virt stöðvunarskyldu þar sem hann ók norður Byggðaveg og beygði inn á Þingvallastræti til austurs. Var þetta
annað meint umferðalagabrot Jóns á stuttum tíma. Voru málin tekin fyrir samtímis í Sakadómi Akureyrar og hann sakfelldur af báðum
ákærum.
Jón ákvað að una ekki dóminum og benti á að sami maður hafði sinnt málinu í umboði lögreglustjóra (framkvæmdavalds)
annars vegar og bæjarfógeta (dómsvalds) hins vegar. Fullyrti hann að með því væri réttlát málsmeðferð ekki tryggð.
Eftir að dómur fyrir fyrra brotið hafði verið staðfestur í Hæstarétti leitaði Jón til Mannréttindadómstóls Evrópu
sem ákvað að veita honum áheyrn fyrstum Íslendinga.
Niðurstaðan var afdráttarlaus:
Málsmeðferð í kjölfar meints umferðalagabrots Jóns Kristinssonar braut í bága við 6. grein Mannréttindasáttmála
Evrópu um réttláta dómsmeðferð fyrir dómstólum. Þegar ljóst varð að íslenska ríkið myndi tapa málinu
í Strassburg leitaði það sátta með fororði um að réttarskipan landsins yrði breytt innan tiltekins tíma.
Í kjölfarið voru sett lög á Alþingi þar sem skilið var með óyggjandi hætti milli dóms- og framkvæmdavalds.
Óréttur sem þjóðin hafði búið við heyrði þar með sögunni til, segir í fréttatilkynningu.