Minjasafnið hefur tekið við rekstri Iðnaðarsafnsins

Við undirritun samninga í dag, Sigfús Karlsson formaður stjórnar Minjasafnsins, Ásthildur Sturludótt…
Við undirritun samninga í dag, Sigfús Karlsson formaður stjórnar Minjasafnsins, Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri og Heimir Kristinsson frá Byggiðn.

Samkomulag milli meirihluta stofnaðila Iðnaðarsafnsins á Akureyri, sem eru Akureyrarbær, Eining-Iðja og Byggiðn - félag byggingamanna, um að fela Minjasafninu á Akureyri að annast rekstur Iðnaðarsafnsins næstu þrjú árin var undirritað í dag. Samkvæmt samkomulaginu gerir Akureyrarbær þjónustusamning við Minjasafnið um verkefnið og var sá samningur einnig undirritaður í dag.

Meginmarkmið samkomulagsins og samningsins eru að því er fram kemur í tilkynningu að:

  • Festa Iðnaðarsafnið í sessi og efla það til framtíðar
  • Viðhalda og þróa áfram það merka frumkvöðlastarf sem Iðnaðarsafnið og aðstandendur þess hafa staðið fyrir frá stofnun þess
  • Tryggja áframhaldandi samfellu í starfsemi Iðnaðarsafnsins, öruggan rekstur og varðveislu safngripa
  • Nýta fagþekkingu og reynslu starfsmanna Minjasafnsins í þágu Iðnaðarsafnsins

Akureyrarbær greiðir árlega 12 m.kr. til verkefna sem kveðið er á um í samningnum, leggur til núverandi húsnæði Iðnaðarsafnsins og greiðir rekstrarkostnað þess. Rekstur Iðnaðarsafnsins verður samþættur rekstri Minjasafnsins, þannig stýrir safnstjóri Minjasafnsins þeim báðum og allt starfsfólk mun koma að rekstri, sýningarhaldi og miðlun á Iðnaðarsafninu. Stjórn Minjasafnsins ber í samræmi við það ábyrgð á daglegum rekstri Iðnaðarsafnsins. Stjórn Iðnaðarsafnsins starfar áfram á samningstímanum en í breyttu hlutverki. Stjórnin tekur þátt í stefnumótun og verður í ráðgjafar- og eftirlitshlutverki gagnvart verkefnum þjónustusamningsins.

Safnið verður í fyrstu opið um helgar kl. 13-16 á meðan starfsfólk gerir breytingar á sýningum. Stefnt er að því að safnið verið opið daglega kl. 13-16 frá og með sumardeginum fyrsta og kl. 11-17 frá 1. júní næstkomandi.

 

 


Athugasemdir

Nýjast