Millilandafarþegum um Akureyrarflugvöll fjölgar stöðugt

Fjölgun millilandafarþega um Akureyrarflugvöll hefur verið mikil undanfarin ár. Samkvæmt tölum Isavia þá nam fjölgunin árið 2017 24% frá fyrra ári, árið 2018 var fjölgunin enn meiri eða 70% miðað við fyrra ár og árið 2019 nam fjölgunin 38% miðað við árið á undan. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands.

 Nú styttist í að ferðamenn á vegum hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt Travel komi í fyrstu vetrarferð ársins til Norðurlands, en alls verða ferðirnar 8 talsins frá 14. febrúar til 9. mars. Sem fyrr er það flugfélagið Transavia sem annast flugið.

 „Fjölgun í heimsóknum erlendra ferðamanna yfir vetrartímann er kærkomin innspýting fyrir ferðaþjónustuna á svæðinu. Þá er þessi stöðugi og mikli vöxtur merki um þann árangur sem hefur náðst í markaðssetningu áfangastaðarins Norðurlands og undirstrikar mikilvægi þess að ráðist verði í uppbyggingu á Akureyrarflugvelli til framtíðar. Auk þess eru flugferðir Voigt Travel frábært tækifæri fyrir íbúa Norðurlands að skreppa til Amsterdam,“ segir í tilkynningu.

Ferðaskrifstofa Akureyrar annast sölu á ferðum frá Akureyri til Amsterdam og hefur þessu framtaki verið vel tekið af heimafólki.


Athugasemdir

Nýjast