08. ágúst, 2009 - 21:18
Fréttir
Kvennalið Þórs/KA vann gríðarlega mikilvægan sigur á Val, er liðin áttust við í 14. umferð Pepsideildarinnar í knattspyrnu
á Hlíðarenda í gærkvöld. Lokatölur leiksins urðu 2:1 og skoraði Mateja Zver bæði mörk norðanstúlkna, það
síðara þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Á sama tíma vann Þór góðan sigur á
Víkingi R., 1:0 á Þórsvellinum og fyrir austan vann KA góðan útisigur á Fjarðabyggð.
Sigurmark Þórs gegn Víkingi á Þórsvellinum kom í uppbótartíma en það skoraði Kristján Steinn Magnússon
með góðum skalla. Á Eskifirði skoruðu þeir Orri Gústafsson og Guðmundur Óli Steingrímsson fyrstu tvö mörk KA í 3:0 sigri
liðsins en þriðja markið var sjálfsmark heimamanna.
Sigrinum á Val á Hlíðarenda er Þór/KA enn í toppbaráttunni í Pepsideild kvenna og þá eru bæði KA og
Þór enn með í baráttunni um sæti í efstu deild karla á næsta ári.