Mikill liðstyrkur til Þórsara í handboltanum

Oddur Grétarsson handboltakappi klæðist þeim rauða og hvíta á næsta keppnistimabili       Mynd  thor…
Oddur Grétarsson handboltakappi klæðist þeim rauða og hvíta á næsta keppnistimabili Mynd thorsport.is

 Oddur Grétarsson sem leikið hefur sem atvinnumaður i handbolta  í Þýskalandi s.l. 11 ár eða svo hefur ákveðið að snúa aftur heim í uppeldisfélag sitt  Þór  og leika með liði félagsins næstu árin.  Oddur sem leikur i stöðu vinstri hornamanns á að baki fjölda landsleikja fyrir Ísland og kemur með mikla reynslu  og gæði í Þórsliðið.

Oddur hefur allan sinn atvinnumannaferil leikið í Þýskalandi en handboltinn þar i landi er talinn sá sterkasti  í heiminum.    Oddur er því  sannkallaður hvalreki á fjörur Þórsara en lið þeirra háir nú harða baráttu um sæti i efstu deild handboltans  hér á landi.


Athugasemdir

Nýjast