Mikil uppbygging og þróun í gangi í Eyjafjarðarsveit

Stjórn SSNE heimsótti Eyjafjarðarsveit og kynnti sér margvísleg verkefni sem unnið er að þar, m.a. h…
Stjórn SSNE heimsótti Eyjafjarðarsveit og kynnti sér margvísleg verkefni sem unnið er að þar, m.a. hjá hrossa, svína og kornbændum. Mynd ssne

Stjórn SSNE hélt fund á dögunum í Eyjafjarðarsveit. Stjórnin fundar almennt með aðstoð Teams, en tvisvar á ári hittist stjórnin á staðfundum og er þá reynt að heimsækja ólík sveitarfélög innan landshlutans.

Á þeim fundum er tækifærið gjarnan nýtt og farið i skoðunarferð í stofnanir og fyrirtæki á svæðinu. Á stjórnarfundinum var meðal annars farið nokkuð ítarlega yfir fyrirkomulag Uppbyggingarsjóðs og áhersluverkefni, en í ár eru fyrstu úthlutanir sem taka mið af nýrri Sóknaráætlun Norðurlands eystra og því ýmsu að huga að. Þá var einnig farið yfir stöðuna á Bakka við Húsavík, og samþykkt verklag við endurskoðun Samgöngu- og innviðastefnu SSNE.

Eftir góðan stjórnarfund fór fulltrúi Eyjafjarðarsveitar í stjórn SSNE ásamt stjórnarmeðlimum víðsvegar um sveitarfélagið og var byrjað á að skoða nýjan fimm deilda leikskóla sveitarinnar sem verður opnaður í haust. Þá voru hrossaræktendur að Hólshúsum heimsóttir, svínabændur á Sölvastöðum og kornbændur í kornþurrkstöðinni að Laugalandi. „Það er greinilega mikill hugur í íbúum Eyjafjarðarsveitar og mikil uppbygging og þróun sem þar er í gangi, ekki síst á sviði landbúnaðar,“ segir í frétt á vef SSNE.

Nýjast