Mennta- og menningarmála- ráðherra í heimsókn á Akureyri

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, kom í heimsókn til Akureyrar í morgun, á Degi íslenskrar tungu. Fyrsta verk ráðherra var að heimsækja leikskólann Kiðagil og í framhaldinu tók við heimsókn í þrjá grunnskóla, Síðuskóla, Brekkuskóla og Naustaskóla. Á hádeginu verður dagskrá fyrir ráðherra á vegum Akureyrarstofu, þar sem farið verður í heimsókn í Gudmanns Minde og Davíðshús.  

Eftir hádegi verður svo dagskrá á Amtsbókasafninu og þar á eftir, eða kl. 14.00 verður hátíðardagskrá í Háskólanum á Akureyri, á vegum framhaldsskóla bæjarins og HA. Síðar í dag, eða kl. 16.00 hefst fjölbreytt hátíðardagskrá mennta- og menningarmálaráðuneytisins, í tali og tónum, í Ketilhúsinu Akureyri. Þar verða m.a. verðlaun Jónasar Hallgrímssonar afhent. Allir eru velkomnir í Ketilhúsið.

Nýjast