Með 100 skammta af LSD

Eitthundrað skammtar af LSD fundust við leit á farþega í fólksflutningabíl í Varmahlíð í Skagafirði seint í gærkvöld. Farþeginn var á leið til Akureyrar og má ætla að efnið hafi átt að vera til sölu þar. Lögreglan á Akureyri hefur verið með sérstakt fíkniefnaeftirlit um helgina þar sem þrír lögreglumenn með fíkniefnahund hafa verið á ferðinni.

Samstarf þeirra við lögregluna á Sauðárkróki leiddi til þess að ákveðið var að leita á farþegum í fólksflutningabíl og merkti hundurinn við einn farþegann sem reyndist vera með lítilræði af ætluðu kókaíni og amfetamíni og umrædda hundrað skammta af ætluðu LSD falið í öðrum skó sínum. Mun lögreglan á Sauðárkróki annast framhald málsins sem telst upplýst.

Nýjast