Alcoa er framkvæmdaraðili verksins en mat á umhverfisáhrifum verður unnið af HRV Engineering. Á vefsíðum Alcoa (http://www.alcoa.is) og HRV (http://www.hrv.is) eru nú til kynningar drög að tillögu að matsáætlun framkvæmdarinnar. Kynningin stendur yfir til 5. júlí 2008. Í tillögu að matsáætlun er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst í stuttu máli og með hvaða hætti framkvæmdin samræmist skipulagi svæðisins. Greint er frá, á hvaða þætti framkvæmdar og umhverfis verður lögð mest áhersla í frummatsskýrslu. Einnig er fjallað um hvaða athuganir og rannsóknir eru fyrirhugaðar á vegum framkvæmdaraðila og yfirlit gefið yfir þær upplýsingar sem fyrir liggja og þegar hefur verið aflað. Þá verður fjallað um undirbúning framkvæmda og sett fram yfirlit yfir þá hagsmunaaðila og stofnanir sem samráð verður haft við í matsferlinu.
Alcoa hvetur almenning og aðra til að koma ábendingum og athugasemdum á framfæri við Arnór Þ. Sigfússon (HRV Engineering, Bíldshöfða 9a, 110 Reykjavík, arnor.sigfusson@hrv.is). Í endanlegri tillögu að matsáætlun verður gerð grein fyrir þeim ábendingum og athugasemdum sem kunna að berast, segir í fréttatilkynningu frá Alcoa.