Mathöll opnar á Glerártorgi í byrjun sumars

HAF STUDIO sér um hönnunina á mathöllinni á Glerártorgi.    Mynd; Aðsend
HAF STUDIO sér um hönnunina á mathöllinni á Glerártorgi. Mynd; Aðsend

Fyrsta mathöllin á Akureyri opnar í byrjun sumars. Stefnan er sett á að opna samtals sex veitingastaði í rýminu og eru framkvæmdir nú þegar hafnar.

Mathöllin verður staðsett í norðaustur hluta Glerártorgs þar sem Vodafone og Kaffi Torg var áður og verður opin umfram almennan opnunartíma Glerártorgs og þurfa svangir og þyrstir gestir mathallarinnar því  ekki að hverfa frá svæðinu þegar verslanir loka.

„Það er löngu kominn tími á að opna mathöll á Akureyri og við stukkum á tækifærið þegar það gafst. Um leið og við fórum af stað með verkefnið spruttu upp hinar og þessar hugmyndir um veitingastaði í mathöllinni og við hlökkum til að sjá allar þær nýju hugmyndir sem koma til með að berast okkur nú þegar við erum formlega búin að boða komu okkar. Ég hvet alla áhugasama um að hafa samband við okkur“ segir Kristján Ólafur Sigríðarsson rekstrarstjóri mathallarinnar.


Athugasemdir

Nýjast