Margrét Einarsdóttir til Fiskistofu

Margrét Einarsdóttir.
Margrét Einarsdóttir.

Margrét Einarsdóttir hef­ur verið ráðin verkefnastjóri þróunar- og gæðamála hjá Fiskistofu. Frá árinu 2013 hefur Margrét starfað sem verkefnastjóri hjá Advania, Bláa lóninu og síðast hjá Sjóvá. Í störfum sínum hefur hún meðal annars komið að innleiðingu GDPR persónuverndarlöggjafar og Office 365 auk þess að annast umsýslu gæðakerfa.

Margrét er með Bsc gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík frá árinu 2013 en hún hefur einnig lokið námi í LEAN straumlínustjórnun.

Meginhlutverk Fiskistofu er að gæta hagsmuna þjóðarinnar við sjálfbæra nýtingu hafs og vatna. Fiskistofa leggur áherslu á framsækin og traust  vinnubrögð og er ráðning Margrétar liður í að styrkja þær áherslur. Fiskistofa er með starfsstöðvar á sex stöðum á landinu og mun Margrét starfa í höfuðstöðvum Fiskistofu á Akureyri.  

Sambýlismaður Margrétar er Jón Ingvar Þorsteinsson verslunarstjóri og eiga þau saman fjögur börn.

 

 


Athugasemdir

Nýjast