20. október, 2009 - 13:11
Fréttir
Á fundi umhverfisnefndar Akureyrar nýlega kynnti Linda María Ásgeirsdóttir verkefnið "Börnin læra það sem fyrir þeim er haft" sem mun
samanstanda af þremur hádegisverðarfundum og málþingi um loftlagsbreytingar/umhverfismál. Málþingið mun verða með
aðaláherslu á þátttöku barna í umhverfismálum.
Aðkoma umhverfisnefndar verður aðallega þátttaka í fundunum og málþinginu og að kynna þetta innan bæjarkerfisins. Norræna
upplýsingaskrifstofan mun sjá um skipulagningu. Nefndin samþykkti að taka þátt verkefninu og felur Lindu Maríu að vinna að því
með Norrænu upplýsingaskrifstofunni.