Magni áfram í VISA-bikarnum

Magni frá Grenivík komst í gær í aðra umferð VISA-bikars karla eftir sigur á Völsungi frá Húsavík en bæði þessi lið leika í 2. deild. Leikurinn fór fram á Húsavíkurvelli og endaði 1-3 fyrir Magna. Mörk Magna skoruðu þeir Ásgeir Örn Jóhannsson, Jón Pétur Indriðason og Símon Símonarson. Mark heimamanna skoraði Bjarki Baldvinsson.

Nýjast