26. maí, 2008 - 09:23
Fréttir
Ungur ökumaður var sviptur ökuréttindum til bráðarbirgða eftir hafa mælst á 105 kílómetra hraða í
Þingvallastræti, á móts við KA-heimilið í gærkvöld.
Hámarkshraðinn á Þingvallarstrætinu er 50 kílómetrar á klukkstund og því var hann töluvert yfir löglegum hraða.
Ökumaðurinn á yfir höfði sér þriggja mánaða ökuleyfissviptingu og allt að 90 þúsund króna sekt. Þá var annar
ökumaður sviptur ökuleyfinu þegar hann mældist á 160 kílómetrahraða á Eyjarfjarðabraut vestri sl. laugardagsmorgun. Að sögn
lögreglunar á Akureyri á hann yfir höfði sér ökuleyfissviptingu í þrjá mánuði og 140 þúsund króna
sekt.