Mældur á 105 kílómetra hraða innanbæjar á Akureyri

Ungur ökumaður var sviptur ökuréttindum til bráðarbirgða eftir hafa mælst á 105 kílómetra hraða í Þingvallastræti, á móts við KA-heimilið í gærkvöld. Hámarkshraðinn á Þingvallarstrætinu er 50 kílómetrar á klukkstund og því var hann töluvert yfir löglegum hraða. Ökumaðurinn á yfir höfði sér þriggja mánaða ökuleyfissviptingu og allt að 90 þúsund króna sekt. Þá var annar ökumaður sviptur ökuleyfinu þegar hann mældist á 160 kílómetrahraða á Eyjarfjarðabraut vestri sl. laugardagsmorgun. Að sögn lögreglunar á Akureyri á hann yfir höfði sér ökuleyfissviptingu í þrjá mánuði og 140 þúsund króna sekt. 

Nýjast