Í Árbók Þingeyinga 2010 birtist lærð grein um trúfélög og andlegar hreyfingar á Húsavík, eftir dándimanninn Heiðar Kristjánsson, sem sé Heidda Gutta, sem um þessar mundir starfar hjá Ásprenti/Stíl.
Við fyrsta lestur virtist þetta ósköp hefðbundinn Árbókarfróðleikur. En þegar betur var að gáð blasti við að greinin var í raun skúbb allra tíma, því höfundi tókst, að eigin sögn, að ræða við aðila sem milljarðar manna hafa öldum saman reynt að ná sambandi við, en án árangurs.
Í inngangi ritgerðarinnar reit höfundur: “Við öflun upplýsinga ræddi ég við fjöldann allan af fólki og alla sem nafngreindir er í þessari samantekt. Kann ég þeim bestu þakkir fyrir.”
Og svo fer Heiðar að nafngreina aðila: “Yngsti boðberi Guðs er Bahá´ul´lláh. Aðrir boðberar Guðs eru meðal annars Móses, Kristur og Múhameð.”
Með öðrum orðum, fyrst greinarhöfundur hafði, eins og hann staðhæfði í formálanum, rætt við alla sem hann nafngreindi í greininni, þá hafði hann augljóslega setið að spjalli, og kannski yfir ölglasi, með þeim félögum Móses, Jesús Kristi, Múmhameð - og síðast en ekki síst, Guði almáttugum!
(Ætli þessi viðtöl séu til á segulbandi eða í papírushandriti?) JS