MA brautskráir 143 stúdenta

Menntaskólanum á Akureyri var slitið í dag og voru brautskráðir 143 stúdentar. Hæstu einkunn á stúdentsprófi fengu Svala Lind Birnudóttir og Kristján Godsk Rögnvaldsson  eða 9,5.  Flestir stúdentar útskrifuðust af félagsfræðibraut, 71, 24 af málabraut, 48 af náttúrufræðibraut, þar af 16 af eðlisfræðilínu og einn jafnframt af tónlistarkjörsviði listnámsbrautar. Að þessu sinni var enn fremur brautskráður fyrsti hópur nemenda sem komu í skólann rakleitt úr 9. bekk grunnskóla. Í ræðu sinni fjallaði  Jón Már Héðinsson, skólameistari meðal annars um það mikla starf sem í skólanum hefur verið unnið að þvi að endurskoða og bæta skólaskipan og laga hana að nýjum lögum um framhaldsskóla. Hann tók fram að allir starfsmenn og nemendur hefðu lagt til málanna og niðurstaðan væri sú að vernda heildarhagsmuni nemenda og skólans, leggja áherslu á breiða almenna menntun með markvissu starfi, nýta kosti bekkjakerfisins og auka svigrúm nemenda til að móta sjálfir stúdentspróf sitt, sem stæðist hæstu gæðakröfur.Jón Már fjallaði um fjárveitingar til skólans og kvaðst vongóður um að með nýju verklagi yrðu þær tryggari en verið hefur. Skólinn hefði verið afar vel rekinn og samkvæmt ströngum reglum og það væri lykilatriði að ríkisvaldið tæki tillit til þess og léti skólann njóta þess en ekki gjalda óreiðu annarra stofnana

Nýjast