Lystigarðurinn á Akureyri opnaður á sunnudag

Lystigarðurinn á Akureyri verður opnaður almenningi sunnudaginn 1. júní nk. og verður opinn út september. Garðurinn verður opinn á virkum dögum frá kl. 08-22 og um helgar frá kl. 09-22. Lystigarðurinn, sem er staðsettur í suðurbrekkunni sunnan við Menntaskólann, er rómaður fyrir fegurð og mikinn fjölda plöntutegunda. Björgvin Steindórsson garðyrkjufræðingur og forstöðumaður Lystigarðsins segir að mikill fjöldi fólks leggi leið sína í garðinn ár hvert og séu útlendingar heldur fjölmennari en Íslendingar. "Við höfum verið að skjóta á að hingað komi á annað hundrað þúsund manns á hverju sumri," segir Björgvin og hann býst við svipuðum fjölda gesta í ár.  Aldarafmæli garðsins verður haldið árið 2012 og þá er stefnan að kaffihús verði komið á laggirnar í garðinum fyrir gesti og gangandi. Kaffihúsið var á fjárhagsáætluninni fyrir sumarið en hefur verið slegið af og stefnan verið sett að koma því upp að minnsta kosti fyrir aldarafmælið.

Nýjast