28. janúar, 2010 - 21:58
Fréttir
Á fundi samfélags- og mannréttindaráðs Akureyrar í gær var fjallað um þá ákvörðun SÁÁ að loka
göngudeild á Akureyri í vor í sparnaðarskyni. Ráðið lýsir yfir áhyggjum sínum vegna fyrirhugaðrar lokunar göngudeildar
SÁÁ á Akureyri. Fólk sem á við áfengisvanda að stríða og fjölskyldur þess fær minni aðstoð og vandinn
hlýtur að aukast að sama skapi.
Samfélags- og mannréttindaráð beinir því til SÁÁ að framlögum ríkisins verði varið í þjónustu
við íbúa Akureyrar og Norðurlands í réttu hlutfalli við íbúafjölda.