28. nóvember, 2009 - 11:00
Fréttir
Samkvæmt skýrslu sem rædd var í umhverfisnefnd Akureyrar í vikunni, eru vandamál vegna lúpínu og skógarkerfils í Hrísey
það mikil að ef ekkert verður að gert mun eyjan verða undirlögð af þessum plöntum innan 50 ára. Lagt er til að kynna skýrsluna fyrir
íbúum Hríseyjar í byrjun næsta árs. Þá var formanni umhverfisnefndar falið að ræða við umhverfisráðherra um
vandann vegna gríðarlegrar útbreiðslu áðurnefndra plantna.
Umrædd skýrsla, um gróðurkortlagningu í Hrísey sem Náttúrufræðistofnun Íslands vann að beiðni umhverfisnefndar, var
lögð fram á fundinum. Borgþór Magnússon forstöðumaður vistfræðideildar Náttúrufræðistofnunar mætti á
fundinn og kynnti skýrsluna.