Lokaumferð 1. deildar karla í dag

Í dag fer fram síðasta umferð 1. deildar karla í knattspyrnu og verða bæði Þór og KA í eldlínunni. Þór fær Hauka í heimsókn á Þórsvöllinn en Haukar tryggðu sér sæti í efstu deild að ári í síðustu umferð. KA lýkur leik á útivelli en þeir gulklæddu sækja HK heim á Kópavogsvöll. Þá sækir Magni Gróttu heim í lokaumferð 2. deildar karla en Magni þarf á sigri að halda og hagstæð úrslit úr öðrum leikjum til þess að halda sæti sínu í deildinni. Leikirnir hefjast allir kl. 14:00.

Nýjast