Lokað fyrir heita vatnið á Brekkunni vegna viðgerðar

Vegna viðgerða er nauðsynlegt að loka fyrir heita vatnið á stórum hluta Brekkunar á Akureyri, segir í tilkynningu frá Norðurorku. Hægt er að sjá nánari lýsingu á heimasíðu fyrirtækisins, http://www.no.is/   Lokað verður fyrir heita vatnið kl. 16.00 í dag og reikna má með að lokunin standi fram eftir kvöldi.  Vakin er athygli á því að Sundlaug Akureyrar verður lokuð eftir kl. fjögur í dag.

Nýjast