Lögreglumennirnir afréðu að nálgast þessar verur, enda jarðbundnir menn og vantrúaðir á að þarna færu fulltrúar af öðrum heimi. Tígri og málaði maðurinn reyndust enda hinir viðræðubestu og lögðu þegar niður plastvopnin sín þegar þeir urðu lögreglunnar varir. Kom á daginn að þarna voru venjulegir framhaldsskólanemar af holdi og blóði. Félagar þeirra tóku nú að gefa sig fram hver af öðrum og voru í hinum ýmsu múnderingum og með vopn úr frauðplasti og fleiru. Alls voru þetta 10-15 "skrípi" og gáfu þá skýringu að þeir væru að ,,larka", þ.e. í hlutverkaleik. Lögreglan hefði reyndar truflað lokaorrustuna. Þeir féllust á að geyma hana til betri tíma og viðurkenndu að uppátækið hefði getað komið grandalausum vegfarendum nokkuð í opna skjöldu.