Lögreglan truflaði lokaorrustuna í hlutverkaleik framhaldsskólanema

Rétt fyrir kl. 01:00 í nótt barst tilkynning frá Sjúkrahúsinu á Akureyri um mikinn hávaða frá Lystigarðinum., sem er rétt norðan FSA.  Lögreglumenn fóru á staðinn og heyrðu þegar mikil öskur og angistarvein berast úr skóginum. Skömmu seinna sáu þeir bregða fyrir mannveru í tígrisdýrafeldi og síðan sást annar maður laumast um, ber að ofan, málaður í andlitinu og með sverð í hönd. Fleiri skuggar sáust á ferli milli trjánna.  

Lögreglumennirnir afréðu að nálgast þessar verur, enda jarðbundnir menn og vantrúaðir á að þarna færu fulltrúar af öðrum heimi. Tígri og málaði maðurinn reyndust enda hinir viðræðubestu og lögðu þegar niður plastvopnin sín þegar þeir urðu lögreglunnar varir. Kom á daginn að þarna voru venjulegir framhaldsskólanemar af holdi og blóði. Félagar þeirra tóku nú að gefa sig fram hver af öðrum og voru í hinum ýmsu múnderingum og með vopn úr frauðplasti og fleiru. Alls voru þetta 10-15 "skrípi" og gáfu þá skýringu að þeir væru að ,,larka", þ.e. í hlutverkaleik. Lögreglan hefði reyndar truflað lokaorrustuna.  Þeir féllust á að geyma hana til betri tíma og viðurkenndu að uppátækið hefði getað komið grandalausum vegfarendum nokkuð í opna skjöldu.

Nýjast