Lögreglan á Akureyri lýsir eftir vitnum frá 2004

Lögreglan á Akureyri lýsir eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað laugardaginn 4. september 2004 um miðjan dag á Eyjafjarðarbraut eystri skammt frá Akureyri. Málsatvik voru þau að karlmaður veittist að konu á rauðri fólksbifreið og veitti henni alvarlega áverka. Tveir karlmenn á jeppabifreið munu hafa komið að þar sem þetta átti sér stað og tekið árásarmanninn á brott með sér. Lögreglan biður þá sem komu þarna að og aðra þá sem hugsanlega hafa vitneskju um málið að hafa samband við lögregluna á Akureyri í síma 464 7705.

Nýjast