Ljósmyndasýning á óþekktum ljósmyndum úr safni Minjasafnins á Akureyri

Ert þú mannglögg/ur? Ertu minnug/ur á staðhætti? Ef svo er þá skorar Minjasafnið á Akureyri á þig að aðstoða starfsfólk safnins við að koma nafni á andlit, hús, mannvirki og þorp á ljósmyndasýningunni; Þekkir þú...fjölbreytileika mannlífsins? Sýningin verður opnuð kl. 14.00 í dag, laugardaginn 2. febrúar, og stendur til 26. apríl. Sýningin samanstendur af 70 óþekktum myndum úr safni Minjasafnsins. Þær eru teknar víða um landið á árunum 1920-1960 og eru flestar úr safni ljósmyndastofu Jóns og Vigfúsar á Akureyri. Það ljósmyndasafn er eitt af mörgum sem er í eigu Minjasafnins, en ljósmyndadeild þess státar af safnkosti uppá 2,5 milljónir mynda. Það er því í hópi stærstu safna sinnar tegundar á landinu. Margar myndanna eru óþekktar og því hefur verið brugðið á það ráð að setja saman sýningaröðina Þekkir þú...? Þessi sýning er önnur í þeirri sýningaröð. Þannig vekur safnið athygli og áhuga glöggra einstaklinga á því að koma og vita hvort þeir kannist við það sem fyrir augu ber á ljósmyndunum. Sýningin er opin alla laugardaga eftir opnun til 26. apríl. Allir eru velkomir - enginn aðgangseyrir.

Nýjast