Listasumar hefst á morgun

Á morgun, þriðjudaginn 24. júní, hefst Listasumar 2025 og stendur hátíðin til 19. júlí.

Hátíðin hefst með Opnu húsi í Kaktus, þar sem haldið verður upp á Jónsmessu með tilraunakenndu og opnu DJ – VJ kvöldi, og Opnu húsi í Deiglunni, sem hefur öðlast nýtt og spennandi líf. Einnig verður Opin vinnustofa í Listasafninu, þar sem gestalistamaðurinn Esther Moises tekur á móti gestum aftan við safnið, jónsmessudjass HAG tríós á Minjasafninu auk þess sem plötusnúðurinn síkáti, Vélarnar, mun þeyta skífum í Sundlaug Akureyrar.

„Í dagskrá Listasumars 2025 má greina gríðarlegan fjölbreytileika meðal viðburðanna sem eiga sér stað um allan bæ. Ég mæli heilshugar með að sem flest kynni sér dagskrána þar sem eitthvað er við allra hæfi og auðveldlega hægt að skipuleggja eigið menningar- og skemmtiprógramm innan Akureyrar á meðan hátíðin stendur yfir. Áfram Listasumar,“ segir Jón Haukur Unnarsson, verkefnastjóri Listasumars.

Nýjast