List án landamæra á fljúgandi ferð og núna á Norðurlandi

Það verður mikil hátíð á Norðurlandi um helgina en þá er komið að formlegri opnun norðurlandshluta listahátíðainnar List án landamæra. Herlegheitin hefjast á laugardaginn kl. 11.30 með opnun ljósmyndasýningar Finns Inga Erlendssonar. Þaðan liggur leiðin í Safnasafnið á Svalbarðsströnd þar sem hinn fimm metra hái Safnvörður verður afhjúpaður af Huglistarhópnum, sem á heiðurinn að verkinu.    

Frá Safnasafninu er haldið í Ketilhúsið þar sem List án landamæra á Norðurlandi er formlega sett klukkan þrjú þennan dag.  Setningin er í höndum Hermans Jóns Tómassonar formanns bæjarráðs og verðandi bæjarstjóra á Akureyri.  Huglistarhópurinn opnar sýninguna Vappað inn i vorið, Stefán Fjólan flytur ljóð, Finnur Ingi Erlendsson frumflytur lag í tilefni dagsins og svokölluð Inúítaflétta verður frumflutt en heiðurinn að henni á tónskáldið Jón Hlöðver Áskelsson.  Í Inúítafléttunni koma saman barnakór Lundaskóla, blásarar og trommarar.  
Gestir Ketilhússins geta svo látið ljós sitt skína í trommuleik þegar boðið verður upp á trommuhring þar sem allir fá að prófa undir leiðsögn Ingva Rafns Ingvasonar tónlistarmanns og kennarar við Tónlistarskólann á Akureyri.  Það er mikil eftirvænting vegna komu trommudansarans Önnu Thastum frá Grænlandi en hún er sérstakur gestur hátíðarinnar.  Anna mun flytja magnaða særingatrommudansa í Deiglunni klukkan 16.30 og 17.30 og er það einnig von þeirra sem standa að Inúítafléttunni að Anna taki þátt í þeim flutningi.  
Þegar dagskrá lýkur í Ketilhúsinu og Deiglunni er hægt að líta við í Lautinni sem er athvarf Rauða krossins fyrir fólk með geðraskanir.  Gleðin heldur svo áfram í Ketilhúsinu á laugardagskvöld með mikilli tónlistarveislu sem hefst klukkan 21.  Þar koma fram Finnur Ingi Erlendsson og Brynjar Freyr Jónsson en þeir munu m.a. spinna verk á gítara, Stefán Fjólan og Ragnheiður Arna Arnarsdóttir flytja ljóðs, poppsveitir nemenda úr Tónlistarskólanum á Akureyri koma fram og að síðustu mun hljómsveitin Skakkamanagehalda uppi stuðinu.  
Það verður einnig glatt á hjalla í Fjallabyggð en á laugardaginn opna sýningar undir hatti Listar án landamæra, beggja vegna Héðinsfjarðar. Annars vegar í Listhúsi Fjallabyggðar í Ólafsfirði og hinsvegar í ráðhúsinu á Siglufirði.  Hátíðin heldur svo áfram eftir helgi með opnunum í Gallerí Ráðhús á Akureyri og Amtsbókasafninu svo dæmi séu tekin.  Nánari upplýsingar um viðburði næstu viku berast eftir helgi.
Hátíðin List án landamæra er nú haldin í sjötta sinn og hefur hátíðin breyst og þróast ár frá ári og fleiri eru að verða meðvitaðir um gildi hennar í listalífinu, bæði þátttakendur og njótendur. Þátttakendum fjölgar með hverju ári og í ár eru fleiri bæjarfélög með atburði á dagskrá en nokkru sinni fyrr.  Markmið hátíðarinnar er að koma list og menningu fólks með fötlun á framfæri.

Nýjast