Leitað að konu við Hrafnagil

Lögreglan á Akureyri boðaði út björgunarsveitir  um kl 15. í gær vegna konu sem saknað var við Hrafnagil. Konan sem er á fimmtugsaldri hafði farið í göngutúr snemma í gærmorgun og ekkert hafði til hennar spurst eftir það. Hjálparsveitin Dalbjörg og Súlur björgunarsveit hófu leit á líklegum svæðum næst Hrafnagili. Klukkan 16:30 fundu björgunarsveitarmenn á mótorhjólum konuna í fjalllendi ofan Hrafnagils voru þá yfir 30 björgunarsveitarmenn í leit. Konan fann til slappleika og svima og hafði sofnað, henni var fylgt niður og þar hlúðu björgunarsveitarmenn að henni.

Nýjast