Leiðrétting: Húsasmiðjan áfram opin á Dalvík

Ekki stendur til að loka Húsasmiðjunni á Dalvík eins og sagði í frétt Vikudags.is í gær. Forsvarsmenn Húsasmiðjunnar hafa sent frá sér tilkynningu þar sem segir ekkert verði af fyrirhugaðri lokun í bili hið minnsta. „Með því viljum við gefa samfélaginu á Dalvík og í nágrannabyggðum tækifæri á að sína yfirlýstan vilja í verki og versla í auknum mæli í heimabyggð. Öllum er ljóst að ekki er ástæða til að íhuga lokun gangi reksturinn vel í ár. Endanlegur dómur liggur þannig hjá heimamönnum og þakka forsvarsmenn Húsasmiðjunnar Dalvíkingum og nærsveitarmönnum kærlega fyrir skýr viðbrögð,“ segir í tilkynningu. 

 

Nýjast