29. mars, 2010 - 14:36
Fréttir
Umhverfisnefnd Akureyrar leggst gegn því að leyfi verði veitt fyrir veitingastað yfir Glerá með vísan til umferðaröryggis sunnan ár og
lítillar fjarlægðar í íbúðahús við Lönguhlíð. Jafnframt eru þessar hugmyndir ekki í samræmi við anda
væntanlegs deiliskipulags sem gerir ráð fyrir friðsælu útivistarsvæði til almenningsnota.
Á síðasta fundi umhverfisnefndar var tekið fyrir erindi frá skipulagsnefnd þar sem óskað er umsagnar nefndarinnar á erindi Orra
Árnasonar f.h. SS Byggis ehf. um lóð fyrir hús yfir Glerá. Erindið var áður á dagskrá umhverfisnefndar þann 29. júní
í fyrra en ekki tekin afstaða til þess þar sem deiliskipulag af Glerársvæðinu lá ekki fyrir.