Á síðasta fundi umhverfisnefndar var tekið fyrir erindi frá skipulagsnefnd þar sem óskað er umsagnar nefndarinnar á erindi Orra Árnasonar f.h. SS Byggis ehf. um lóð fyrir hús yfir Glerá. Erindið var áður á dagskrá umhverfisnefndar þann 29. júní í fyrra en ekki tekin afstaða til þess þar sem deiliskipulag af Glerársvæðinu lá ekki fyrir.