Baldvin H. Sigurðsson leggst gegn fyrirhugaðri sameiningu heilbrigðisstofnana á Norðurlandi og óttast að sameining rýri heilbrigðisþjónustu í minni sveitarfélögum á svæðinu. Kristín Sigfúsdóttir lét bóka á fundi félagsmálaráðs að hún leggist gegn þeim ákvörðunum að ein stjórn verði sett yfir heilbrigðisstofnanir á Norðurlandi.
Í bókun bæjarráðs kemur einnig fram; að Akureyrarbær hefur um árabil séð um rekstur Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri, í upphafi með tilkomu reynslusveitarfélagsverkefnisins og síðan með þjónustusamningi við heilbrigðisráðuneytið. Samvinna stofnana bæjarins og HAK er mjög mikilvæg fyrir ýmsa þætti félagsþjónustu á Akureyri og hefur skilað sér í betri þjónustu við bæjarbúa.