18. febrúar, 2010 - 16:55
Fréttir
Kynning á nýju deiliskipulagi fyrir austurhluta miðbæjar Akureyrar fer fram í Brekkuskóla laugardaginn 20. febrúar. Kynningarfundurinn verður
frá kl. 13.30 til 15.00. Bæjaryfirvöld, skipulagshönnuðir frá Greame Massie Architects og aðrir ráðgjafar munu kynna skipulagstillögunina og
svara fyrirspurnum.
Á fundinum verður m.a. leitað svara spurningum á borð við þessar:
- Af hverju þarf deiliskipulag af miðbænum? Er þörf á breytingum?
- Hverjar eru lykiláherslur skipulagsins?
- Hvaða breytingar eru fyrirhugaðar á Glerárgötu?
- Hvernig eru bílastæðamál leyst?
- Hvar og hvað er fyrirhugað að byggja?
- Af hverju síki og vatnasvæði?
- Er kostnaðurinn ekki of mikill í ljósi efnahagsástandsins?
Boðið verður upp á gönguferð um miðbæinn í lok fundar.