Kynningarfundur um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2018 verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 29. nóvember kl. 16.30 í Lionssalnum á 4. hæð í Skipagötu 14. Formaður bæjarráðs kynnir áætlunina og því loknu verða umræður og leitast við að svara spurningum fundarmanna.
Á vef Akureyrarbæjar segir að fundurinn sé til marks um vilja bæjaryfirvalda að auka íbúalýðræði og verða slíkir fundir haldnir árlega til að kynna fjárhagsáætlun komandi árs.