01. febrúar, 2008 - 10:33
Fréttir
Að teknu tilliti til aldurs, starfsaldurs, starfs og starfssviðs eða deildar og vinnutíma kemur í ljós að ekki er marktækur munur á dagvinnulaunum
karla og kvenna sem starfa hjá Akureyrarbæ. Dagvinnulaun karla og kvenna eru mjög lík. Helmingur karla hefur 184 þúsund eða minna á
mánuði í dagvinnulaun og helmingur þeirra meira en það. Meðaldagvinnulaun karla eru nokkuð hærri en miðgildið eða 212 þúsund
á mánuði. Helmingur kvenna hefur 188 þúsund á mánuði í dagvinnulaun eða minna og helmingur kvenna meira en það. Meðal
dagvinnulaun kvenna eru 208 þúsund á mánuði. Á vordögum 2007 leitaði Akureyrarbær til Rannsókna- og
þróunarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri (RHA) um gerð allsherjarkönnunar á launum starfsmanna bæjarins.
Könnunin var kynnt í bæjarráði Akureyrarbæjar í gær og sé tekið tillit til starfs, starfssviðs, aldurs, starfsaldurs og vinnutíma
mælist ekki marktækur kynbundinn munur á launum karla og kvenna, hvorki þegar um er að ræða dagvinnulaun né heildarlaun. Samskonar könnun sem
gerð var árið 1998 hafði leitt í ljós að konur voru að meðaltali með 6% lægri dagvinnulaun og 8% lægri heildarlaun, þ.e.
óútskýrður kynbundinn launamunur körlum í hag. Karlar hafa að meðaltali hærri heildarlaun en konur. Helmingur karla hefur 308 þúsund
eða minna á mánuði í heildarlaun og helmingur karla meira en það. Meðal heildarlaun karla eru 332 þúsund á mánuði. Helmingur
kvenna hefur 263 þúsund á mánuði í heildarlaun eða minna og helmingur kvenna meira en það. Meðalheildarlaun kvenna eru 274 þúsund
á mánuði. Að teknu tilliti til aldurs, starfsaldurs, starfs, starfssviðs eða deildar og vinnutíma reynist kynbundinn munur á heildarlaunum ekki
marktækur.
Í gegnum tíðina hafa kannanir sýnt fram á að það er frekar í aukagreiðslum (yfirvinnu, vaktaálagi og fl.) sem launamunur kynja kemur
í ljós. Aukagreiðslur eru nokkuð hátt hlutfall af heildarlaunum starfsmanna eða að meðaltali rúm 22% heildarlauna. Hlutfallið er þó
nokkuð hærra hjá körlum en konum eða rúm 46% á móti um 14% hjá konum. Stærstur hluti aukagreiðslna hjá Akureyrarbæ er
tilkominn vegna skráðrar yfirvinnu en síðan koma vaktavinnuálagsgreiðslur. Eftir gagngera endurskoðun á launagreiðslum starfsmanna Akureyrarbæjar
á árunum 2005-2007 er eingöngu greidd yfirvinna samkvæmt tímaskráningum og hvergi er um fastar yfirvinnugreiðslur eða akstur að ræða.
Karlar virðast því áfram sækja meira í vaktavinnustörf eða störf þar sem þörf er á yfirvinnu. Tekið skal fram að
Akureyrarbær hefur þegar sett þak á unna yfirvinnu sinna starfsmanna m.t.t. fjölskyldustefnu bæjarins og hefur því markmiði verið
náð á flestum stöðum. Þess ber að geta að konur eru tæp 79% starfsmanna Akureyrarbæjar en karlar aðeins rúmlega 21%. Konur eru um 63%
af 80 helstu stjórnendum Akureyrarbæjar.
Þennan góða árangur má að miklu leyti þakka gagngerri endurskoðun á launakerfi Akureyrarbæjar ásamt þátttöku
bæjarins í vinnu við nýtt starfsmatskerfi sveitarfélaganna. Ljóst var eftir niðurstöður launakönnunarinnar frá 1998 að vinna
þyrfti markvisst að því að jafna laun kynjanna. Settur var á laggirnar þverpólitískur vinnuhópur um endurskoðun launakerfisins sem
hafði það hlutverk að skoða sérstaklega yfirvinnu og aðrar aukagreiðslur. Í ljós kom að málum var misjafnlega háttað og sums
staðar var t.d. greidd föst óunnin yfirvinna meðan annars staðar var yfirvinna eingöngu greidd samkvæmt skráningum. Í framhaldinu voru teknar
þær erfiðu ákvarðanir að einungis yrði greitt fyrir skráða yfirvinnu og allar fastar akstursgreiðslur og aðrar aukagreiðslur voru afnumdar.
Í kjölfarið fylgdi mikil vinna sem leitt hefur til þeirrar góðu niðurstöðu sem launakönnun RHA nú sýnir. Það virðist
því ljóst að með góðum vilja, mikilli vinnu og eljusemi er hægt að eyða kynbundnum launamun, segir í fréttatilkynningu sem
þær Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri og Katrín Björg Ríkarðsdóttir jafnréttisráðgjafi skrifa
undir.