Kufungar og skeljaskvísur

Marsibil G. Kristjánsdóttir listakona frá Þingeyri opnar listasýningu í Deiglunni á Akureyri á föstudag  kl.20.20.

MArsibil

Á sýningunni verða sýnd verk sem eiga sterka tengingu við fjörur Íslands. Síðustu árin hefur Marsbil unnið mikið með þá gersemi sem finna má í fjörunni. Eins og kufunga, skeljar, ígulker, kalkþörunga og hörpudiska. Úr þessum magnaða efnivið hefur listakonan unnið ýmis verk sem verða nú sýnd í Deiglunni.

Frá því í lok desember hefur listakonan dvalið í listamannaíbúð Gilfélagsins á Akureyri og þar hefur hún einkum unnið að kufunga- og skeljamyndum. Verða þær til sýnis í Deiglunni ásamt skeljaskvísum hennar er vakið hafa athygli.

Blekbóndinn, leikarinn og eiginmenni listakonunnar, Elfar Logi Hannesson, hefur einnig dvalið í íbúð Gilfélagsins. Hefur hans mánaðarverk verið að stúdera skáldaprestinn Matthías Jochumsson með það fyrir augum að gera jafnvel dúltið leikverk eða eftil vill barnabók um Matta. Við opnunina á föstudagskveld 27. janúar mun Elfar vera með stutt erindi eða öllu heldur Mattador um Matta. 

Einnig verður sýningin opin um helgina frá kl.13.00 til 15.00 báða dagana


Athugasemdir

Nýjast