Kristnesspítala lokað í fjórar vikur í sumar

Kristnesspítala verður lokað í fjórar vikur í sumar.
Kristnesspítala verður lokað í fjórar vikur í sumar.

Ákveðið hefur verið að loka Kristnesspítala þar sem fram fara enduhæfinga- og öldrunarækningar. Lokunin verður í 4 vikur frá og með 22. júní til 21. júlí 2024.

Búast má við að það taki viku að ná upp fullri starfsemi að loknu sumarleyfi.

„Með þessu móti mun skerðing á endurhæfingastarfsemi stofnunarinnar verða með minnsta móti í stað þess að halda úti starfsemi á deild með takmarkaða starfsemi í allt að 12 vikur yfir sumarið,“ segir Helgi Þór Leifsson framkvæmdastjóri klínískrar þjónustu i tilkynningu á vef Sjúkrahússins á Akureyri.


Athugasemdir

Nýjast