18. mars, 2009 - 11:17
Fréttir
Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum á fundi sínum í gær, að kjördagur um tillögu
samstarfsnefndar um sameiningu Akureyrarkaupstaðar og Grímseyjarhrepps verði laugardaginn 25. apríl 2009, samhliða kosningum til Alþingis. Kynning á
málefnaskrá fyrir nýtt sveitarfélag verður í höndum samstarfsnefndar.
Gert er ráð fyrir því að sameiningin taki gildi 1. júní 2009 og að bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar fari með stjórn hins
sameinaða sveitarfélags fram að almennum sveitarstjórnarkosningum vorið 2010.