Kolbrún Benediktsdóttir heiðursgestur Háskólahátíðar 2021

Kolbrún Benediktsdóttir.
Kolbrún Benediktsdóttir.

Háskólahátíð - brautskráning frá Háskólanum á Akureyri 2021 fer fram dagana 11. og 12. júní í Hátíðarsal háskólans. Athöfnunum verður streymt á Facebook- og YouTube rás Háskólans á Akureyri. Brautskráðir verða rúmlega 500 kandídatar af þremur fræðasviðum. Alls verða athafnirnar 3: Kandídatar í framhaldsnámi á föstudeginum og svo grunnnemar í tveimur hollum á laugardeginum.

Kolbrún Benediktsdóttir, varahéraðssaksóknari er heiðursgestur hátíðarinnar í ár og mun hún ávarpa kandídata í grunnámi á laugardeginum, er fram kemur í tilkynningu frá Háskólanum. Kolbrún brautskráðist frá Lagadeild HÍ 2005 og hefur starfað sem saksóknari frá árinu 2006 – fyrst hjá ríkissaksóknara en síðan skipuð varahéraðssaksóknari 2016.

Kolbrún hefur vakið athygli fyrir að takast á við erfið og viðkvæm mál í réttarkerfinu en leggur áherslu á að aðskilja vinnu/nám og einkalíf: „Það skiptir svo öllu máli þegar út í atvinnulífið er komið að vera ánægður og glaður/glöð í sínu starfi. Að vinna við eitthvað sem er gefandi og vekur áhuga og í góðu starfsumhverfi en þá eru allar líkur á að þér líði vel í vinnunni og í lífinu. Það skiptir líka miklu máli að geta skilið verkefnin eftir á vinnustaðnum, bæði í orði og á borði, taka ekki vinnuna með heim endalaust heldur njóta þess að vera með fjölskyldu og vinum án þess að vera sífellt að hugsa um vinnuna,“ er haft eftir Kolbrúnu í tilkynningu.

„Mér hefur fundist mjög gott að eiga mér áhugamál og stunda hreyfingu því það er fátt betra en að taka vel á eftir erfið mál í minni vinnu til að fá útrás. Við skulum líka passa að vera ekki of hörð og ósanngjörn við okkur sjálf og berja á okkur þegar mikið er að gera í vinnu fyrir að vera ekki nógu góðir foreldrar eða makar. Það er gott að muna að magn er ekki alltaf sama og gæði. Við sjáum nú vonandi fyrir endann á þessu ástandi sem hefur einkennt síðust tvö ár. Það verða áskoranir fólgnar í því að koma út í atvinnulífið á þeim tímamótum en mikil þörf á fersku fólki og þá skiptir miklu að nýta vel það sem Covid-19 þó hefur kennt okkur. Það er ýmislegt jákvætt sem við höfum lært t.d. það að suma fundi má vel halda í gegnum fjarfundaforrit en það er bæði umhverfisvænt, tímasparandi og eykur möguleika fólks sem býr og starfar í ólíkum landshlutum á að vinna saman. Þá hefur það sýnt sig að ákveðin sveigjaleiki í vinnutíma og það hvar við vinnum vinnuna getur verið jákvæður,“ segir Kolbrún Benediktsdóttir.

 


Athugasemdir

Nýjast