Keppt í Fiskidagskappreiðum þann 5. ágúst

Fimmtudaginn 5. ágúst nk. kl 17:00 verða haldnar kappreiðar á
Hringsholtsvelli í Svarfaðardal við Dalvík. Þar verður keppt í 100 m skeiði fljúgandi start, 250 m brokk, stökk og skeið úr startbásum, með rafrænni tímatöku. Vegleg peningaverðlaun verða fyrir þrjú efstu sætin í hverri grein og að auki fá sigurvegarar glæsilegan ferðakistil framleiddan af Prómens Dalvík.

Skráningarfrestur er til 1. ágúst kl 20:00 og fer fram í gegnum
heimasíðu félagsins www.hringurdalvik.net. Skráningargjald er kr 3000. á hest pr.grein. Þar af rennur 50% af skráningargjaldi í verðlaunafé sem gerir grunnpottinn enn stærri.

Nýjast